Innlent

Mikill áhugi fanga að dvelja í Hegningarhúsinu

MYND/Vísir

Það skortir síður en svo áhuga hjá föngum að dvelja í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg. Þetta sagði Björn Bjarnason dómsmálaráðherra í umræðum um undirbúning nýrrar fangelsisbyggingar á Alþingi á fjórða tímanum. Einnig kom fram í máli ráðherrans að hann gerði ráð fyrir að undanþágan sem Hegningarhúsið hefur verið á verði framlengd, en hún rennur út innan skamms, enda telji hann víðtækan vilja til staðar um að starfsemin þar haldi áfram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×