Innlent

Tíu sérfræðingar á fund nefndar vegna kjaradómsmáls

MYND/GVA

Að minnsta kosti tíu sérfræðingar á ýmsum sviðum hafa verið kallaðir á fund efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis um kjaradómsfrumvarpið, sem hefst klukkan hálfníu. Hefur Þingfundi, sem átti að hefjast klukkan ellefu, verið frestað til hálftvö vegna þess. Sigurður Líndal, fyrrverandi lagaprófessor, hefur meðal annarra verið boðaðir á fundinn. Álits hans verður leitað vegna vaxandi efasemda, einkum meðal stjórnarandstöðunnar, um að frumvarp ríkisstjórnarinnar um ógildingu kjaradóms, standist fyllilega ákvæði stjórnarskrárinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×