Innlent

Mikil hækkun á Avion við skráningu

Magnús Þorsteinsson, stjórnarformaður Avion.
Magnús Þorsteinsson, stjórnarformaður Avion. MYND/GVA

Verðmæti Avion Group jókst um tæpa tuttugu milljarða króna á fyrstu mínútunum eftir opnun Kauphallar Íslands í morgun. Avion er lang stærsta fyrirtækið sem skráð hefur verið í Kauphöllina en skráning þess hófst þar í morgun.

Það ríkti mikil eftirvænting í Kauphöll Íslands í morgun. Ákveðið var að setja fyrirtækið á markað í desember og rétt fyrir jól lauk útboði á hlutum í fyrirtækinu til fagfjárfesta. Þeim var boðið að kaupa hlutabréf á genginu 38,3 upp á sex milljarða króna en tilboð bárust hins vegar í hlut upp á 102 milljarða. Þegar þessi mikli áhugi lá fyrir var ákveðið að hækka útboðið upp í tíu milljarða. Magnús Þorsteinsson, stjórnarformaður Avion, sagði rétt áður en sala á bréfunum hófst klukkan tíu, að hann væri ánægður með að félagið væri komið í Kauphöll Íslands.

Magnús Þorsteinsson, stjórnarformaður Avion Group, sagði skömmu eftir að markaðir opnuðu að hann hefði ekki búist við þessu mikla stökki og að fyrirtækið myndi reyna af megni að standa undir væntingum.

Skömmu síðar var stundin runnin upp og tilboðin byrjuðu að streyma inn. Gengi bréfanna var fljótt komið í 50 en þegar NFS yfirgaf Kauphöllina um klukkan hál ellefu, var gengið komið í 47,8. Þetta mun sjálfsagt breytast allt til lokunnar kauphallarinnar í dag, en engu að síður er ljóst að gengi bréfanna hækkar mjög mikið strax á fyrsta degi.

Skömmu fyrir tólf var gengi bréfa í Avion Grouo í 45,6 og höfðu þá verið gerð viðskipti með bréf í félaginu upp á 2,6 milljarða króna. Miðað við þetta gengi er verðmæti félagsins nú tæpir 82 milljarðar króna.

Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, sagði mikinn feng fyrir Kauphöllina og fjárfesta að fá svona stórt fyrirtæki með alþjóðlega starfsemi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×