Innlent

Sammála um að hætta viðræðum

Í stjórnstöð Landsvirkjunar.
Í stjórnstöð Landsvirkjunar. MYND/Pjetur

Iðnaðarráðherra, fjármálaráðherra, borgarstjórinn í Reykjavík og bæjarstjórinn á Akureyri hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu um að ekki séu lengur forsendur fyrir frekari viðræðum um kaup ríkisins á hlut Reykjavíkur og Akureyrar í Landsvirkjun.

Legið hefur fyrir um skeið að svo langt er í milli í verðmati ríkis og sveitarfélaganna um verðmat á hlut þeirra í Landsvirkjun að samkomulag næst ekki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×