Innlent

Uppnám meðal Frjálslyndra demókrata

Mark Oaten.
Mark Oaten. MYND/AP

Uppnám ríkir í Frjálslynda demókrataflokknum í Bretlandi eftir að dagblaðið News of the World birti í morgun fréttir þess efnis að Mark Oaten, sem fer með innanríkismál í skuggaráðuneyti frjálslyndra, hefði ítrekað greitt 23 ára manni fyrir kynlíf.

Oaten dró sig úr leiðtogakjöri flokksins í síðustu viku en stutt er síðan Charles Kennedy lét af leiðtogaembætti eftir að hafa viðurkennt að eiga við áfengisvandamál að stríða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×