Innlent

Stefnt að mikilli uppbyggingu umhverfis Hlemm

Íbúum á svæðum umhverfis Hlemm gæti fjölgað um allt að þrjú þúsund á næstu árum ef nýtt deiliskipulag verður að veruleika. Fyrstu reitirnir koma að öllum líkindum til uppbyggingar strax á þessu ári.

Skipulagsyfirvöld í Reykjavík kynntu í dag tillögur að nýju skipulagi á svæðinu á opnum fundi á Kjarvalsstöðum. Svæðið hefur verið kallað Hlemmur plús og samanstendur af sex reitum umhverfis þessa aðalstöð strætósamgangna. Svæðið nær frá Snorrabraut og Barónsreit í vestri og yfir í Borgartún og til Miklatúns í austri og suðri.

Í tillögunum er gert ráð fyrir að töluvert af húsum verði rifið og ný byggð í staðinn en vinna að reitunum er mislangt komin. Tillaga að deiliskipulagi á reit sem afmarkast af Einholti og Þverholti er nú þegar í auglýsingu hjá Borgarskipulagi en að því loknu, eða í seinni hluta febrúar, mun koma í ljós hvort hún verði samþykkt.

Gert er ráð fyrir að íbúðir á svæðinu geti orðið yfir þúsund með andlitslyftingu þess. Dagur B. Eggertsson, formaður skipulagsráðs borgarinnar, segir markmiðið að uppbyggingin verði að veruleika og stuðli að því að svæðið verði skemmtilegra og kraftmeira. Það verði akkeri á þessum stað í miðborginni á móti tónlistar- og ráðstefnuhúsinu niður við Reykjavíkurhöfn.

Dagur vonast eftir að uppbyggingin verði hröð. Hann segir að fyrstu reitirnir komi til uppbyggingar þegar á þessu ári. Á næstu fimm árum eigi hann svo von á mikilli andlitslyftingu á svæðinu og að það færist í flokk með mest spennandi svæðum borgarinnar. Það taki einhver ár og framkvæmdatíminn geti reynt á. Fundurinn í dag hafi verið haldinn til að fá sjónarmið íbúa á svæðinu og athugasemdir þeirra og svo verði reynt að vinna eins hratt úr málinu og kostur er.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×