Innlent

Kristinn kommi og María mey

KRISTINN H. GUNNARSSON Gunnar segir að Kristinn og fleiri sem gengið hafi í Framsóknarflokkinn úr Alþýðubandalaginu hafi lagt mikið á sig við að reyna að breyta flokknum þannig að hann fari nær þeirra gömlu stefnu. Fyrir vikið hafi þingmaðurinn hrakist út á kant í flokknum og eigi sér vart viðreisnar von, því það þurfi meira en gamla komma til að halda aftur Framsóknarflokknum í því að þróast til framtíðar.
KRISTINN H. GUNNARSSON Gunnar segir að Kristinn og fleiri sem gengið hafi í Framsóknarflokkinn úr Alþýðubandalaginu hafi lagt mikið á sig við að reyna að breyta flokknum þannig að hann fari nær þeirra gömlu stefnu. Fyrir vikið hafi þingmaðurinn hrakist út á kant í flokknum og eigi sér vart viðreisnar von, því það þurfi meira en gamla komma til að halda aftur Framsóknarflokknum í því að þróast til framtíðar. MYND/GVA

Fulltrúi í miðstjórn og sveitarstjórnarmaður Framsóknarflokksins í sveitarstjórn Skagafjarðar vill að Kristinn H. Gunnarsson, samflokksmaður hans, segi af sér þingmennsku. Mælirinn sé einfaldlega fullur. Sveitarstjórnarfulltrúinn kallar Kristin komma, en líkir honum jafnframt við Maríu mey.

Kjördæmisþing framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi fór fram á dögunum og þar voru á meðal ræðumanna Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, og Kristinn H. Gunnarsson þingmaður. Gunnar Bragi Sveinsson, sem bæði er sveitarstjórnarfulltrúi Framsóknarflokksins í Skagafirði og á sæti miðstjórn hans, fjallar um þingið í pistli á heimasíðu Bæjarins besta. Þar segir hann að skugga hafi borið á þingið vegna ræðu Kristins því hann hafi farið í bakið á formanninum, þar sem Halldór hafi flutt sína ræðu daginn áður og því ekki viðstaddur til að verja sig. Gunnar segir mælinn nú vera orðinn fullan; Kristinn hvítþvoi sig af erfiðum málum flokksins en komi svo með geislabauginn þegar eitthvað vinsælt sé í gangi, og hann geti ekki endalaust komist upp með að leika Maríu mey, enda ekki heiðarlegt gagnvart þeirri ágætu konu.

Gunnar segir að Kristinn og fleiri sem gengið hafi í Framsóknarflokkinn úr Alþýðubandalaginu hafi lagt mikið á sig við að reyna að breyta flokknum þannig að hann fari nær þeirra gömlu stefnu. Fyrir vikið hafi þingmaðurinn hrakist út á kant í flokknum og eigi sér vart viðreisnar von, því það þurfi meira en gamla komma til að halda aftur Framsóknarflokknum í því að þróast til framtíðar.

Þá segir Gunnar að Kristinn sé áhrifalaus þingmaður, og bætir reyndar við að þingmennirnir Jón Bjarnason og Sigurjón Þórðarson séu það einnig. Því eigi hann að gefa þingsæti sitt laust, sé honum annt um kjördæmi sitt. Og Gunnar lýkur pistli sínum á eftirfarandi orðum: Við þurfum þingmenn sem mark er tekið á því einungis þeir ná fram málum. Áfrifalausir þingmenn ná engu fram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×