Innlent

Dómarar fresta ákvörðun um málsókn

Félagar í Dómarafélagi Íslands ákváðu í dag að fresta ákvörðun um hvort þeir höfði mál á hendur stjórnvöldum vegna lagasetningar þar sem launahækkanir samkvæmt kjaradómi voru felldar úr gildi. Þess í stað verður óskað viðræðna við stjórnvöld.

Félagsfundur var haldinn í Dómarafélagi Íslands í dag þar sem fjallað var um lagasetninguna. Niðurstaða hans var að dómarar véfengja að lög um afnám ákvörðunar Kjaradóms um launahækkanir til handa embættismönnum og stjórnmálamönnum standist stjórnarskrá. Segja þeir efasemdirnar ekki síst tilkomnar vegna þess hversu ríka áherslu beri að leggja á sjálfstæði dómsvaldsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×