Innlent

Starfsmenn heilbrigðisstétta fái að auglýsa þjónustu sína

MYND/Hari

Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram tillögu á Alþingi um að læknum, tannlæknum, öðrum heilbrigðisstéttum og heilbrigðisstofnunum verði framvegis heimilt að auglýsa þjónustu sína. Ágúst Ólafur rökstyður tillöguna með því að auglýsingabannið komi í veg fyrir að almenningur geti fengið nauðsynlegar upplýsingar um heilbrigðisþjónustu, en verði að treysta á umtal, ímynd og orðróm þegar velja skal heilbrigðisþjónustu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×