Innlent

Laun leikskólakennara hækka um 12 prósent að meðaltali

MYND/AP

Laun leikskólakennara hækka að meðaltali um 12 prósent samkvæmt ákvörðun sem tekin var á fundi Launanefndar sveitarfélaganna í morgun. (LUM) Kjör leikskólakennara verða þau sömu og aðrir háskólamenntaðir starfsmenn fengu í kjarasamningum Reykjavíkurborgar við Eflingu og Stafsmannafélag Reykjavíkurborgar í desember en launahækkununum verður náð með því að bæta við launaflokkum og eingreiðslum.

Gildistími launaviðbótanna er frá upphafi þessa árs til 30. september þegar kjarasamningur Félags leikskólakennara við launanefndina rennur út. Launanefndin situr enn á fundi þar sem eftir er að ákvarða hvernig hægt sé að hækka laun starfsmanna sveitarfélaganna sem lægst hafa launin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×