Innlent

Um tvö þúsund hafa kosið í prófkjöri Framsóknar

MYND/Vilhelm

Um tvö þúsund manns höfðu klukkan fjögur greitt atkvæði í prófkjöri Framsóknarflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar, samkvæmt upplýsingum Ragnars Þorgeirssonar, formanns kjörnefndar. Kosið er í anddyri Laugardalshallarinnar og stendur kjörfundur til klukkan sex, en fljótlega eftir það er von á fyrstu tölum. Þúsund manns kusu utan kjörstaðar í prófkjörinu í vikunni og því hafa alls um þrjú þúsund neytt atkvæðisréttar síns í prófkjörinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×