Sport

Arsenal úr leik

Bolton er komið áfram í enska bikarnum á kostnað Arsenal
Bolton er komið áfram í enska bikarnum á kostnað Arsenal NordicPhotos/GettyImages
Arsenal féll úr bikarkeppni í annað skipti á nokkrum dögum í kvöld þegar liðið lá 1-0 fyrir Bolton á Reebok-Stadium í enska bikarnum. Það var Stelios Giannakopoulos sem skoraði sigurmark heimamanna á 83. mínútu. Arsene Wenger tefldi ekki fram sínu sterkasta liði í leiknum og virðist vera með hugann við eitthvað annað en að vinna enska bikarinn í ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×