Innlent

Baldvin hlutskarpastur í forvali VG á Akureyri

Frá Akureyri.
Frá Akureyri.

Baldvin H. Sigurðsson sigraði í forvali Vinstri - grænna fyrir sveitarstjórnarkosningar á Akureyri í gær. Hann fékk 60 prósent atkvæða í fyrsta sætið. Valgerður H. Bjarnadóttir bæjarfulltrúi varð í öðru sæti en hún sóttist eins og Baldvin eftir að leiða listann. Dýrleif Skjóldal Ingimarsdóttir varð í þriðja sæti, Kristín Sigfúsdóttir í því fjórða, Jón Erlendsson í fimmta og Lilja Guðmundsdóttir í því sjötta. Ljóst er að endurraða þarf á listann þar sem samþykkt hafði verið að bjóða fram fléttulista í kosningunum í vor en konurnar á listanum eru of margar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×