Sport

Ísland tapaði fyrir Ungverjum

Snorri Steinn var markahæstur í íslenska liðinu með tíu mörk, þar af fjögur úr vítaköstum
Snorri Steinn var markahæstur í íslenska liðinu með tíu mörk, þar af fjögur úr vítaköstum

Íslenska landsliðið í handbolta tapaði fyrir Ungverjum 35-31 í lokaleik sínum í C-riðli EM í Sviss í dag, eftir að staðan hafði verið 14-12 fyrir Ungverja í hálfleik. Tapið kemur þó ekki að sök, því íslenska liðið tekur með sér þrjú stig í milliriðla í keppninni.

Snorri Steinn Guðjónsson skoraði 10 mörk fyrir íslenska liðið, Róbert Gunnarsson skoraði 6 og Einar Hólmgeirsson skoraði 4 mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×