Innlent

Sex starfsmannaleigur skráðar hjá Vinnumálastofnun

Fjórar starfsmannaleigur hafa skráð sig hjá Vinnumálastofnun í morgun og hafa því alls sex leigur skráð sig þar eins og ný lög um starfsmannaleigur gera ráð fyrir. Frestur starfsmannaleigna til að skrá sig hjá stofnuninni rann út á miðnætti en öllum starfsmannaleigum, íslenskum sem erlendum, er skylt að skrá fyrirtækið og alla starfsmenn sem vinna á þess vegum hér á landi. Lögin eiga að koma í veg fyrir að fólk starfi hér á landi án atvinnuleyfa og að það sé ekki hlunnfarið en það er í höndum Vinnumálastofnunar að hafa eftirlit með því að lögunum sé framfylgt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×