Innlent

Staða kaupskipaútgerðar skýrist fljótt

Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra.
Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra. MYND/Teitur

Fjármálaráðherra segir að fljótt komi í ljós hvort og þá hvernig skuli bregðast við skráningu kaupskipa og farmanna erlendis. Þingmenn lýstu miklum áhyggjum af því á þingi í dag að innan skamms yrðu ekki lengur neinir farmenn skráðir á Íslandi.

Guðmundur Hallvarðsson hóf umræðuna og spurði ráðherra hvort til greina kæmi að breyta skattaumhverfi kaupskipaútgerða til að tryggja að ekki yrðu öll kaupskip og farmenn skráð erlendis. Hann sagði athyglisvert að nú væri svo komið, fyrir aðgerðaleysi stjórnvalda, að skipin sem sæu um millilandasiglingar til Íslands og olíuflutninga í íslenskar hafnir væru niðurgreidd af Færeyingum.

Kristján Möller sagði að fjármálaráðherrar hefðu löngum þvælst fyrir því að brugðist yrði við flótta farskipaútgerðarinnar úr landi, sérstaklega vefðist hugsanlegt skattatap fyrir þeim. Þó væri það svo að ef þau farskip sem eru skráð erlendis væru skráð hérna, þó með skattaafslætti væri, myndu þau skila allt að 200 milljónum króna í skatttekjur.

Jón Bjarnason sagði hvert fyrirtækið á fætur öðru flæmast úr landi vegna aðgerðaleysis ríkisstjórnarinnar. "Eimskip, óskabarn þjóðarinnar, er á förum úr landi. Samskip eru farin úr landi. Fiskvinnslan er farin úr landi."

 

Fjármálaráðherra sagðist hins vegar vera að vinna í málinu. Hann sagðist hafa talað við forvígismenn samtaka viðkomandi sjómanna í vikunni og gerir ráð fyrir að ræða við stjórnendur skipafélaganna áður en vikan er úti. Árni sagðist ætla að kanna hvað útgerðarmenn og sjómenn vildu að yrði gert og sjá hvort stjórnvöld væru hlynnt slíkum aðgerðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×