Innlent

Áfram stefnt að styttingu en hlustað á gagnrýnisraddir

Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra takast í hendur eftir samkomulagið.
Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra takast í hendur eftir samkomulagið. MYND/Vilhelm

Menntamálaráðherra og kennaraforystan ætla að vinna saman að heildarendurskoðun á námi í tengslum við fyrirhugaða styttingu á námstíma til stúdentsprófs. Áfram er þó stefnt að styttingu náms til stúdentsprófs en menntamálaráðherra segir að tekið verði tillit til þeirra gagnrýnisradda sem fram hafi komið í málinu.

Menntamálaráðherra og formaður Kennarasambandsins undirrituðu í dag samkomulag um samstarf sem nefnt er tíu skref til sóknar og miðar að því að bæta enn frekar skólakerfið. Meðal annars stendur til að endurskoða lög um leik-, grunn- og framhaldsskóla og efla kennaramenntun. Þá fá framhaldsskólar fjögurra ára aðlögunartíma til að takast á við breytta námsskipan, en áfram er stefnt að því að stytta framhaldsskólann úr fjórum árum í þrjú.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir að með þessu sé að hluta til móts við þær gangrýnisraddir sem bent hafa á að stytting náms til stúdentsprófs geti leitt til skerðingar á náminu. Hún vill að horft verði á inntak stúdentsprófsins og ekki verði einblínt á einingafjölda.

Þorgerður Katrín segir þó að það séu álitaefni í málinu sem þurfi að fara yfir eins og ábendingar tungumálakennara varðandi þriðja tungumál sem nemendur læra. Þetta sé ætlunin að leysa í samvinnu við kennarasamfélagið.

Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir sambandið alla tíð hafa verið andvígt skerðingu náms. Kennaraforystan hafi staðið frammi fyrir tveimur kostum. Að vera bara á móti eða leita leiða til að hafa áhrif á hvernig málin þróast. Kennarasambandið hafi átt langar viðræður við ráðuneytið þar sem ríkt hafi trúnaður og traust. Þetta sé niðurstaðan og hún nái til fleiri þátta en námskipanar til stúdentsprófs.

Menntamálaráðherra hyggst leggja fram frumvarp um breytta skipan stúdentsprófs nú á vorþingi en reiknað er með að grunnskólinn byrji að vinna samkvæmt nýrri námsskipan árið 2007 og framhaldsskólar almennt árið 2010.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×