Sport

Ensku liðin vilja fá Beckham

David Beckham er ekki bara hjá Real Madrid til að selja treyjur að sögn Florentino Perez forseta Real Madrid
David Beckham er ekki bara hjá Real Madrid til að selja treyjur að sögn Florentino Perez forseta Real Madrid NordicPHotos/GettyImages

Florentino Perez, forseti Real Madrid, segir að ensk lið bíði í röðum með að fá enska landsliðsmanninn David Beckham úr röðum spænska liðsins, en segir ekki á döfinni að selja leikmanninn.

"Öll ensku liðin eru að reyna að krækja í hann, en við erum mjög ánægðir með hann hérna og viljum endilega að hann framlengi samning sinn við okkur í sumar. Fólk gleymir því oft að hann er frábær knattspyrnumaður sem hefur spilað marga frábæra leiki fyrir okkur, því margir halda að við höfum aðeins keypt hann hingað til að selja treyjur," sagði Perez.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×