Sport

Zidane í fantaformi - skoraði tvennu

Real Madríd vann í gærkvöldi sjöunda leikinn í röð í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar liðið burstaði Espanyol 4-0. Zinedine Zidane var besti maður vallarins og skoraði tvö marka sinna manna. Klukkan 18 í dag verður leikur Barcelona og Atletico Madríd sýndur beint á Sýn.

Það tók Real Madríd aðeins 14 mínútur að skora fyrsta markið á Santiagao Bernabeu-vellinum í Madríd í gærkvöldi. David Beckham sendi knöttinn fyrir markið og fyrirliðinn Jose Maria Guti skaust á milli varnarmanna og skoraði. Besti maður vallarins, Frakkinn Zinedine Zidane bætti við öðru marki tveimur mínútum fyrir leikhlé. Roberto Carlos fékk sendingu frá Robinho og hann fann Zidane frían í vítateignum og Frakkinn snjalli skoraði af öryggi.

Þremur mínútum síðar lagði Brasilíumaðurinn Cichino af stað upp völlinn og sendi hnitmiðaða sendingu á kollinn á Ronaldo sem skoraði 10. mark sitt á leiktíðinni. Ronaldo er nýstaðinn upp úr meiðslum en þetta var fyrsti leikur hans í mánuð. Espanyol, sem tapaði 5-0 fyrir Getafe á dögunum veitti litla mótspyrnu og strax í byrjun síðari hálfleiks bætti Zidane við öðru marki sínu og fjórða marki Real Madríd. Cicinho átti sendinguna og Zidane skaut viðstöðulaust í markið.

Real Madríd er 10 stigum á eftir Barcelona sem á leik til góða, gegn Atletico Madríd klukkan 18 í dag. Sá leikur verður sýndur beint á Sýn. Valencia er í 2 sæti deildarinnar, stigi á undan Real Madríd eftir 1-0 sigur á Deportivo La Coruna á útivelli í gærkvöldi. David Villa skoraði ótrúlegt mark á 21. mínútu þegar hann skaut boltanum í mark Deportivo af 45 metra færi. Þetta var 14. mark Villa á leiktíðinni en hann er 4 mörkum á eftir markahæsta leikmanni deildarinnar, Samuel Etoo.

Deportivo, sem sló Valencia út úr spænska bikarnum í síðustu viku fékk tækifæri til þess að jafna metin en markvörður Deportivo, Santiago Canizarez varði vítaspyrnu Viktors.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×