Innlent

Vegið sé að námsmönnum með því að afnema fæðingarstyrk til maka

MYND/Pjetur

Sérfræðingur í norrænum málum telur vegið að námsmönnum í Danmörku með því að afnema rétt maka námsmanna erlendis til fæðingarstyrks frá Íslandi. Í bæði Noregi og Svíþjóð er heimavinnandi fólki greitt fæðingarorlof. Starfsfólk Tryggingastofnunar fer þvert gegn félagsmálaráðuneytinu með því að benda fólki á að brjóta lögheimilisskilyrði laganna.

Félagsmálaráðuneytið segir rétt til fæðingarorlofs eða fæðingarstyrks taka mið af stöðu einstaklings en ekki pars. Sigurjón Örn Þórsson, aðstoðarmaður félagsmálaráðherra, segir breytinguna gera ráð fyrir því að allir sitji við sama borð.

Ráðuneytið mat það sem svo að það ætti sér ekki stoð í lögum að halda áfram að greiða mökum námsmanna fæðingarstyrk umfram maka annarra hópa. Kvartað hefur verið til þingmanna vegna málsins og skýrsla verið send til landamæraskrifstofu norrænu ráðherranefndarinnar. Eftir kvörtun frá Sambandi íslenskra námsmanna erlendis endurskoðar félagsmálaráðuneytið nú málið.

Sigurjón segir enduskoðunina lúta að því að skoða með hvaða hætti breytt framkvæmd hafi komið niður á einstaka hópum sem eigi rétt á greiðslum úr sjóðnum.

Dæmi eru að starfsfólk Tryggingastofnunar geri hvað það geti til að leiðbeina fólki um hvernig komast megi hjá þessu ákvæði. Bent er á þann möguleika að flytja lögheimili ekki úr landi eða flytja lögheimili makans aftur til Íslands. Þannig fara starfsmenn Tryggingastofnunar gegn ráðuneytinu, sem segir nauðsynlegt að flytja lögheimili samfara flutningum erlendis. Sigurjón segir að með því njóti fólkið þeirrar þjónustu sem viðkomandi ríki bjóði upp á. Ráðuneytið mæli ekki með því að fólk sé með lögheimili á Íslandi en búi í Danmörku.

Aðspurður hvað gerist ef annar aðilinn hafi lögheimili áfram á Íslandi en þeir búi báðir í útlöndum segir Sigurjón hugsanlegt að úrskurðað verði um lögheimili viðkomandi. Það lögheimil fylgi búsetu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×