Sport

Hlær að sögusögnum

Samuel Eto´o hefur enn verið orðaður við Chelsea
Samuel Eto´o hefur enn verið orðaður við Chelsea NordicPhotos/GettyImages

Framherjinn Samuel Eto´o hjá Barcelona gat aðeins hlegið þegar hann var spurður út í orðróm þess efnis að hann væri á leið til Englandsmeistara Chelsea í sumar.

"Þessi orðrómur kemur mér satt best að segja ekki mikið á óvart og þetta er bara vegna þess að nú er farið að styttast í leik okkar gegn Chelsea í Meistaradeildinni. Ef við náum að vinna Chelsea mætum við líklega Juventus og þá verður farið að tala um að ég sé á leiðinni þangað," sagði Kamerúninn hlæjandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×