Sport

Jafnt hjá Minden og Flensburg

Snorri Steinn skoraði sex mörk fyrir Minden.
Snorri Steinn skoraði sex mörk fyrir Minden. Fréttablaðið/Pjetur

Fjórir leikir fóru fram í Þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag en íslendingarnir létu frekar lítið að sér kveða í dag, nema þá Snorri Steinn Guðjónsson sem skoraði sex mörk fyrir Minden, þar af fjögur úr vítaköstum.

Minden gerði 27-27 jafntefli gegn Flensburg en Magdeburg lagði Dusseldorf 36-20. Arnór Atlason skoraði eitt mark fyrir Magdeburg en Sigfús Sigurðsson komst ekki á blað. Lemgo vann Nordhorn í stórleik helgarinnar 31-28 og þá vann Kiel öruggan 40-27 sigur á Wetzlar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×