Innlent

Vélstjórar fella kjarasamning í annað sinn

Vélstjórar á fiskiskipum felldu nýgerðan kjarasamning við LÍÚ með aðeins tveggja atkvæða mun. Skrifað var undir samninginn um áramót en þetta er í annað sinn sem vélstjórar fella kjarasamning á innan við ári, en þeir felldu einnig samning sem gerður var á fyrri hluta síðasta árs.

Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags Íslands, segir samninginn hafa verið í megindráttum eins og samninga sem gerðir hafi verið við Sjómannasambandið og Farmanna- og fiskimannasambandið en vélstjórum hafi ekki líkað ýmislegt sem þar hafi verið, til að mynda breytingar á mönnunarákvæðum skipa og hafnarfríum. Helgi segir að nú verði sest niður með viðsemjendum aftur og farið yfir stöðuna en hann sjái ekki neina patentlausn í málinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×