Innlent

Ekki marktækur munur á fylgi Vilhjálms og Dags

Ekki er marktækur munur á fylgi Dags B. Eggertssonar og Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, borgarstjóraefni Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins, í embætti borgarstjóra í vor samkvæmt borgarmálakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Samfylkinguna 14.-19. febrúar.

Ef litið er til þeirra sem tóku afstöðu vilja 51,8 prósent sjá Dag sem borgarstjóra eftir kosningarnar í vor en 48,2 prósent vilja Vilhjálm. Fleiri konur vilja Dag sem borgarstjóra en fleiri karlar Vilhjálm og þá nýtur Dagur meira fylgis meðal yngri kynslóða en Vilhjálmur hins vegar meðal hinna eldri. Svarhlutfall í könnuninni var 71,4 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×