Innlent

Kemur vel til greina að nota tálbeitur

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra.
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra.

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir það koma sterklega til greina að lögregla beiti tálbeitum til að koma upp um barnaníðinga. Dómsmálaráðherra sagði þetta í utandagskrárumræðu á Alþingi nú rétt fyrir fréttir.

Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, fór fram á umræðuna eftir umfjöllun fréttaskýringaþáttarins Kompáss um barnaníðinga og hvernig þeir reyna að komast í sambönd við börn. Dómsmálaráðherra sagði koma til álita að ríkissaksóknari setti reglur um í hvaða málum og með hvaða hætti lögregla mætti nota tálbeitur frekar en að Alþingi samþykkti lög í þessa veru.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×