Innlent

Ragnhildur Inga færð úr fimmta sæti í það þriðja í Garðabæ

Frá Garðabæ.
Frá Garðabæ. MYND/Róbert

Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ ákvað á fundi sínum í gærkvöld að færa Ragnhildi Ingu Guðbjartsdóttur úr fimmta sæti í það þriðja á framboðslista flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Var það gert vegna óánægju með að karlar hefðu lent í fjórum efstu sætunum í prófkjöri í bænum í janúar en listinn þótti ekki nógu sölulegur þannig. Röð efstu manna verður því sú að Erling Ásgeirsson er í fyrsta sæti á listanum, Páll Hilmarsson í öðru, Ragnhildur Inga í því þriðja, Stefán Konráðsson í fjórða sæti og Sturla Þorsteinsson því fimmta, en tveir þeir síðastnefndu færast niður um eitt sæti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×