Innlent

Umsókn Bauhaus frestað vegna athugasemda

Borgarráð frestaði enn einu sinni afgreiðslu á umsókn bygginarvörukeðjunnar Bauhaus um lóð undir verslun í landi Úlfarsfells, í þetta sinn vegna lögfræðiálits sem barst frá BYKO og mótmæla frá Mosfellsbæ. BYKO ásælist einnig lóðina þrátt fyrir að hafa fengið úthlutað lóð skammt frá.

Þýski byggingavörurisinn Bauhaus hefur síðustu misseri sóst eftir því að opna verslun hér á landi og leitað eftir lóð vegna þess. Fyrst sótti fyrirtækið um lóð í Kópavogi en fékk ekki, þá í Garðabæ en án árangurs og loks í Reykjavík, á lóð austan Vesturlandsvegar, og bíður nú svara frá borgaryfirvöldum.

Til stóð að samþykkja vilyrði fyrir byggingu tuttugu þúsund fermetra byggingavöruverslunar á vegum Bauhaus á borgarráðsfundi í dag en því var frestað vegna athugasemdanna. Dagur B. Eggertsson, formaður skipulagsráðs Reykjavíkurborgar, segir að á elleftu stundu hafi komið fram lögfræðileg álitsgerð frá BYKO og bréf frá bæjarstjóranum í Mosfellsbæ sem talið hafi verið eðlilegt að svara áður en vilyrðið yrði afgreitt formlega. Stjórnsýslu- og starfsmannasviði borgarinnar hafi verið falið að vetia borgarráði umsögn fyrir næsta fund sem verði eftir viku.

BYKO hefur þegar fengið úthlutað lóð í nágrenninu og Dagur segist þannig ekki sjá rök fyrir því að sami aðili fái tvær lóðir hvora sínum megin Vesturlandsvegar.

Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, segir bæinn hafa mótmælt úthlutuninni þar sem hún stangist á við samþykkta þróunaráætlun Mosfellsbæjar og Reykjavíkur um uppbyggingu bæjarkjarna á mörkum sveitarfélaganna.

Í bréfi Mosfellsbæjar til borgarinnar kemur fram að BYKO, Rúmfatalagernum og Mata hafi þegar verið úthlutað 10 hektara svæði vestan Vesturlandsvegar. Austan Vesturlandsvegar sé hins vegar 12,5 hektara lóð sem meðal annars hafi verið ætluð undir slökkvi- og lögreglustöð og minni fyrirtæki, en nú standi til að úthluta Bauhaus lóð á því svæði. Því sé harðlega mótmælt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×