Innlent

Guðmundur sigraði í Fjarðabyggð

Frá Fáskrúðsfirði.
Frá Fáskrúðsfirði.

Guðmundur Þorgrímsson, oddviti í Austurbyggð, sigraði í gær í prófkjöri Framsóknarflokksins í fjórum sveitarfélögum á Austurlandi sem sameinast undir nafni Fjarðarbyggðar eftir sveitarstjórnarkosningarnar í vor.

Þetta eru Fjarðabyggð, Austurbyggð, Mjóafjarðarhreppur og Fáskrúðsfjarðarhreppur. Í öðru sæti í prófkjörinu varð Þorbergur Hauksson og í því þriðja varð Líneik Anna Sævarsdóttir. Í fjórða sæti varð Eiður Ragnarsson en kosið var í fjögur efstu sætin. 454 tóku þátt í prófkjörinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×