Innlent

Áfrýjað í Baugsmálinu

Sækjandi og verjandi í Baugsmálinu.
Sækjandi og verjandi í Baugsmálinu.

Sigurður Tómas Magnússon, settur saksóknari í Baugsmálinu, hefur ákveðið að áfrýja sýknudómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá í síðustu viku. Hann áfrýjar sýknun í sex af átta ákæruliðum.

Þetta tilkynnti hann sakborningum í dag að því er fram kemur í yfirlýsingu frá Jóhannesi Jónssyni í Bónus. Í yfirlýsingu Jóhannesar segir að áfrýjunin snúi að fjórum ákæruliðum vegna skýringa með ársreikningi Baugs og tveimur ákæruliðum vegna innflutnings á bifreiðum frá Bandaríkjunum. Þeim liðum ákærunnar sem sneru að Jóhannesi er ekki áfrýjað.

Jóhannes segir ennfremur að hann hafi beðið lögfræðing sinn um að kvarta til Umboðsmanns Alþingis yfir embættisfærslu Jóhannesar H. B. Snorrasonar, yfirmanns efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra, og Haralds Johannessens ríkislögreglustjóra.

"Einnig hef ég falið verjanda mínum að kvarta til Umboðsmanns Alþingis yfir embættisfærslu Jóns H. B. Snorrasonar saksóknara og Haraldar Johannessen ríkislögreglustjóra. Þeir fóru upphaflega fyrir málinu þegar ákærur voru gefnar út um mitt sumar 2005. Saksóknarinn segist hafa lokið afskiptum sínum af málinu þó að hann sé enn að senda út bréf vegna ,,rannsóknar" málsins út um allar trissur. Ég tel eðlilegt að Umboðsmaður Alþingis kanni sérstaklega hvernig standi á því að ekki hafi verið talin ástæða til að gefa út ákæru á hendur Jóni Gerald Sullenberger á grundvelli hans eigin framburðar þegar sami grundvöllur var talinn tilefni til að gefa út ákærur á hendur mér og börnum mínum. Tel ég að kanna verði hvort þeir Jón H. B. Snorrason og Haraldur Johannessen hafi gerst brotlegir við jafnræðisreglu stjórnarskrár íslenska lýðveldisins."
Fleiri fréttir

Sjá meira


×