Innlent

Nefnd sex ráðuneyta um Vatnsmýri

Séð yfir vesturhluta Vatnsmýrinnar.
Séð yfir vesturhluta Vatnsmýrinnar. MYND/Stefán

Forsætisráðherra hefur skipað nefnd til að samræma hugmyndir um framtíðarstaðsetningu háskóla- og rannsóknastofnana ríkisins á Vatnsmýrarsvæði. Meðal stofnana sem gætu fengið aðstöðu í Vatnsmýrinni eru Matvælarannsóknir og rannsóknahluti Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Nefndinni er jafnframt ætlað að gæta hagsmuna ríkisins gagnvart Reykjavíkurborg þegar kemur að skipulagningu svæðisins. Í nefndinni sitja fulltrúar sex ráðuneyta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×