Sport

Öruggur sigur Njarðvíkinga

Brenton Birmingham var stigahæstur í jöfnu liði Njarðvíkinga með 14 stig
Brenton Birmingham var stigahæstur í jöfnu liði Njarðvíkinga með 14 stig Mynd/Vilhelm
Njarðvíkingar hafa náð 1-0 forystu í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik karla eftir öruggan sigur á Skallagrími 89-70 á heimavelli sínum í Njarðvík í dag. Brenton Birmingham skoraði 14 stig fyrir Njarðvíkinga og þeir Halldór Karlsson, Egill Jónasson og Jeb Ivey skoruðu 13 stig hver. Axel Kárason var stigahæstur í liði Skallagríms með 16 stig og George Byrd skoraði aðeins 10 stig. Næsti leikur fer fram í Borgarnesi á mánudagskvöldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×