Sport

Logi Geirsson situr fyrir svörum

Logi Geirsson, atvinnumaður í handbolta situr fyrir svörum hjá Fréttablaðinu og á Vísir.is í dag. Á forsíðu Vísis hefur verið hægt að senda spurningar á Loga sem hann hefur nú svarað og afraksturinn má lesa hér á Vísi og í Fréttablaðinu í dag.

Guðmundur Guðmundsson, Kópasker, 20 ára

Spurning: Hver er þín fyrirmynd í handboltanum?

Svar: Faðir minn Geir Hallsteinsson.

María, Reykjavík, 15 ára

Með hvaða liði helduru í fótbolta? Enska og íslenska.

Ég veit ekkert um enska en held samt með Eiði Smára og á Íslandi er það FH.

Jón Stefánsson, Kópavogi, 51 árs

Auk þess að vera mjög góður í þinni íþrótt, hefur þú vakið aðdáun fyrir að vera góð fyrirmynd og góður drengur. Fyrir heimasíðuna sem þú heldur úti og fyrir gott starf þitt með ungu fólki, svo og fyrir þau góðverk sem þú hefur unnið með ferðaboðum fyrir fatlað fólk á þínar slóðir úti, áttu sérstakt hrós skilið. Í mínum huga á ég aðeins eina spurningu til. Hvers vegna geta ekki fleiri íþróttamenn á erlendri grundu verið eins og þú?

Takk kærlega fyrir hrósið en er mjög erfitt fyrir mig að svara þessu. Ég er bara þannig af guði gerður að mér finnst gaman að hjálpa fólki og þá sérstaklega þeim sem minna mega sín. Ég er alveg klár á því að það eru margir eins og ég þó að þeir gangi ekki það langt að sýna það í verki.

Halldór Logi, Akureyri, 17 ára

Hvað ráðleggur þú með mataræði?

Það er mjög misjafnt eftir fólki hvað sé gott fyrir það og hvað ekki. Auðvita mæli ég með að borða oft yfir daginn, hollt og hreyfa sig með, það er hin fullkonma formula.

Hinrik Geir, Hafnarfjörður, 15 ára

Hvernig fórstu að því að verða svona ógeðslega góður á einu ári eftir að þú fórst í atvinnumennskuna og hvernig líður þér í Lemgo?

Ég vissi að ef ég kæmist í aðstæður sem gætu gert mig betri þá myndi ég nýta mér það og er enn að læra og bæta mig. Varðandi hvernig mér líður þá er Lemgo fullkominn staður fyrir mig, ég er svakalega hamingjusamur og það fer vel um mig.

Christian Marel, Hafnarfjörður, 9 ára

Hvernig borðar þú á leikdag?

Ég borða bara það sem ég finn í ísskápnum en yfirleitt er það hollt og næringarríkt. Ég er lítið í því að þurfa alltaf að borða það sama á leikdag.

Axel, Hafnarfjörður, 15 ára

Hvernig aukaæfingar gerðir þú til að ná langt?

Handbolti er þannig að hann er samsettur af mörgum þáttum. Úthald, skot, snerpa, og lyftingar eru hluti af því og ég ákvað að gefa mér meiri tíma í æfingarnar og bæta mig á öllum sviðum. „Mikilvægasta af öllu er samt hvernig þú hugsar"

Friðrik Dór Jónsson, Hafnarfjörður, 18 ára

Hvernig er að búa með Ásgeiri Erni þarna úti?

Það er alger snilld og gæti ég vart hugsað mér betri nágranna.

Grétar, Hafnarfjörður, 28 ára

Hvaða leikmann værir þú til í að sjá keyptann til Lemgo?

Aron Pálmarsson, Ólaf Stefánsson og Svavar Vignis.

Halldór, Reykjavík, 37 ára

Hver er efnilegasti leikmaður Íslands í dag?

Það eru margir mjög góðir hef ég heyrt en látum þá bara sjálfa svara því á vellinum á næstu 2 árum.

Eyþór Grétar Grétarsson, Reykjavík, 20 ára

Hver er uppáhalds leikmaðurinn þinn?

Ég er uppáhaldsleikmaðurinn minn.

Egill Örn Bjarnason, Hafnarfjörður, 24 ára

Hvernig er hægt að vera svona ótrúlega svalur gaur og drullugóður í handbolta samtímis?

Hahaha, ég ætla ekki að upplýsa leyndarmálinu.

Axel Sigurður Axelsson, Keflavík, 29 ára

Ég heyrði að þú værir hryllilega lélegur í borðtennis en settir mikinn metnað í að verða betri. Ertu eithvað að æfa þig á því sviði ?

Ef að ég er lélegur í borðtennis þá ert þú Osama bin Laden.

Eyrún Eva Þrastardóttir, Reykjavik, 28 ára

Hver er besti leikmaðurinn sem þú hefur spilað með?

Volker Zerbe leikmaður Lemgo sem er 2.11 cm á hæð er ótrúlegur leikmaður, einnig Brynjar Geirsson sem hefði getað auðveldlega farið sömu leið og ég.

Leifur Óskarsson, Kópavogur, 16 ára

Hvernig undirbýrðu þig andlega fyrir leiki?

Það er ekkert auðvelt að lýsa þessu en ég kúppla mig í gírinn rétt fyrir leik og einbeiti mér að handboltanum í þessar 60 mínútur sem hann stendur.

Halldóra Sigríður, Svalbarðsströnd, 12 ára

Hvað borðar þú í morgunmat?

Morgunmatur er mikilvægasta máltíð dagsins og ég reyni að borða sem fjölbreyttast. Jógúrt, morgunkorn, brauð og vítamínin eins og lýsis tvennuna sem klikkar ekki.

Birgir Steinar Birgisson, Reykjavík, 14 ára

Hver er erfiðasti andstæðingurinn? Hver er skemmtilegasti samherjinn?

Ég hef aldrei lent virkilega á einhverjum sem hefur verið eitthvað svakalegur, mér finnst allir miserfiðir. Skemmtilegasti er Hilmar Þór Guðmundsson.

Pálína, sveitastelpa, 15 ára

Hver er uppáhalds Pottþétt diskurinn þinn?

Pottþétt 2, ég vann danskeppni í grunnskólanum með einu lagi af þeim disk;).

Óskar Jónsson, Kópavogi

Hvað ilm notar Logi Geirsson þegar að hann fer á veiðar?

Ef ég fer á veiðar þá er ég með HAGLABYSSU annars ef þú ert að meina út á lífið þá nota ég Skulpture sem er rosalega góð.

Jón Þór Kristjánsson, Akureyri, 15 ára

Hvaða stöðu spilaðirðu í yngri flokkunum?

Ég spilaði allar stöður og sem markmaður líka, það er nauðsynlegt að prófa sem mest.

Karl Fannar Sævarsson, Vesturás 10, 18 ára

Hvernig farartæki átt þú?

Ég á lítið mini Harley Davidson mótorhjól og svartan BMW blæjubíl.

Brynja Guðmundsdóttir, Reykjavík, 13 ára

Fílarðu Silvíu Nótt?

Ég var með henni í grunnskóla og fannst hún alltaf fín.

Ragnar Daníel Guðnason, Akureyri, 13 ára

Númer hvað notarðu af skóm?

44 og 2/3.

Pétur Óskar Sigurðsson, Boston, 21 árs

Mig langaði til að spyrja þig hver besti framherjinn er í Landsbankadeildinni heima á Íslandi?

Það eru nokkrir mjög góðir, en sá sem ég held að skari framúr sé FHingurinn Pétur Sig í samfloti við Tómas Leifsson.

Jón Heiðar Sveinsson, Breiðholt, 16 ára

Þekkirðu Gillzenegger?

Jón Heiðar Sveinsson, Breiðholt, 16 ára

Hver er uppáhalds nuddarinn þinn?

Ég á engan uppáhalds nuddara, við í Lemgo erum samt með einhverja 7 nuddara og hver góður á sinn hátt.

Steinunn Guðmundsdóttir, Seltjarnarnes, 22 ára

Hverju leitar þú eftir helst í fari kvenna. Hvort líst þér betur á dökkhærðar stelpur eða ljóshærðar?

Ég leita ekki eftir neinu sérstöku, finnst mikilvægt að þær séu lífsglaðar og jákvæðar enda er ekkert gaman af lífinu öðruvísi. Ljóshærðar, dökkhærðar eða rauðhærðar eru ekki aðalmálið, hver og ein er fögur á sinn hátt.

Sigurður Freyr Sigurðsson, Kópavogur, 23 ára

Hvernig ferðu að því að vera alltaf svona jákvæður þegar erfiðir tímar koma, eins og meiðsli og annað?

Ég hugsa alltaf að það komi betri tímar, og það komi alltaf eitthvað meira. „Þegar þú ert kominn ofan í holu, hættu þá að moka".

Snorri Rafn, 11 ára

Hvað er draumaliðið að spila með?

Ég er í draumaliðinu eins og er.

Haraldur Jón, Ísafjörður, 25 ára

Einu sinni mættir þú í stúdíó í sjónvarpinu og varst að ræða fótbolta. Þú sagðist halda með Everton en vissir álíka mikið um þá í þessum þætti og um útflutning á furu frá Nígeríu. Varstu að grínast þarna, eða fylgistu lítið með fótbolta?

Heyrðu talandi um furu, hehe. Ég man ekki eftir þessu en ég fylgist sama og ekki neitt með fótbolta nema þá Sverri Garðars.

Halldór Brynjar Halldórsson, Akureyri, 21 árs

Hvernig nærðu að vera svona fallega brúnn?

Hehe, sólbað á sumrin og comodynes á veturnar.

Gaui, Garðabær, 29 ára

Ertu hjátrúafullur? Ef svo er hvernig þá?

Hjátrúin mín er að hafa enga hjátrú.

Kristinn Ólafsson, Seltjarnarnes, 12 ára

Hver er besti handboltamaðurinn á Íslandi og hver er bestur í útlöndum?

Besti á Íslandi væri Tite í stjörnunni og bestur í útlöndum er Balic.

Kristinn Ólafsson, Seltjarnarnes, 12 ára

Hvað varstu gamall þegar þú byrjaðir að æfa handbolta?

Það var um 5 ára aldurinn.

Ásgeir Ásgeirsson, Hafnarfjörður, 23 ára

Hvernig vinnurðu í "taninu" og hvað er dýrasta klipping sem þú hefur farið í? Ég er að maka á mig brúnkuklútum fyrir leiki en annars reyni ég bara að kíkja létt á sólina.

Hallgrímur Freyr Adolfsson, Borgarnes, 19 ára

Verður þú meira var við að konur séu að reyna við þig eftir að þú gerðist atvinnumaður?

Já.

Hinrik Hilmarsson, Reykjavík, 48 ára

Getur þú hugsað þér að verða atvinnukylfusveinn?

Nei frekar atvinnu-Golfari.

Halldór, Reykjavík, 22 ára

Ertu að stúdera eitthvað meðfram handboltanum? Ef svo er, hvernig gengur það?

Er að fara að rústa viðskiptafræðinni á Bifröst svo er ég að lesa sjálfur um sálfræði og hamingjuna.

Hafsteinn, Siglufjörður, 15 ára

Er vel borgað í Þýsku úrvalsdeildinni? Er þetta eithvað miðað við það sem

Eiður Smári er að fá borgað?

Ef þú getur eitthvað þá getur maður alveg keypt sér pulsu og kók. Held að Eiður hljóti að fá mun meira enda er markaðurinn einfaldlega þannig.

Þráinn Stefánsson, Reykjavík, 44 ára

Þú ert greinilega drengur góður. Hefur látið þér annt um langveik börn t.d. Gefur þetta þér mikið?

Já ég lít bara á þetta sem sjálfsagðan hlut og gaman að geta gefið af sér, aðallega á þetta að gefa börnunum minningar og gleði.

Sigþór, Reykjavík, 15 ára

Hver er einkennilegasti herbergisfélagi sem þú hefur átt í landsliðum?

Sigurður Eggertsson Valsari er þar lang efstur á lista.

Bjarni Ólafsson, Akureyri, 9 ára

Hver er gáfaðasta manneskja sem þú þekkir?

Vivian Ólafsdóttir.

Teitur Björn Einarsson, Reykjavík, 26 ára

Til að spila handbolta, hvort sem er á Íslandi eða Þýskalandi, þarf maður þá að fá sér húðflúr á líkamann, aflita hárið og vera heltanaður, eða er það bara lífsmáti?

Lifestyle.

Sturla Jökulsson, Hafnarfjörður, 12 ára

Hvaða fótbolta manni myndir þú vilja spila með í handbolta

Sverrir Garðarsson knattspyrnumaður í FH og svo Cantona.

Hrund, Kópavogur, 13 ára

Saknarðu aldrei Íslands? langar þig aldrei að flytja aftur heim?

Ég kem til með að búa á Íslandi í framtíðinni og sakna þess voðalega lítið því ég flýg bara heim ef mig langar það. Þetta eru bara 3 tímar, „Braveheart".

Halldór, Reykjavík, 34 ára

Hvort ertu hnakki eða trefill?

Ég er með minn eigin stíl sem fellur hvorki undir hnakka né trefla.

Dísa, Hafnarfjörður, 18 ára

Hvernig gengur með gel framleiðsluna þína og hvað heitir það?

Það gengur fínt og ég er ekkert að flýta mér með þetta enda er þetta eins og staðan er í dag bara til einkanota. Það heitir L&V.

Bjarni Ólafsson, Akureyri, 9 ára

Áttu gæludýr?

Eins og staðan er í dag nei.

Garðar Jónsson, Akranes, 43 ára

Hvaða handboltamenn, fyrr og síðar myndir þú velja í þitt draumalið?

Markmenn: Jörg Zereike (Lemgo), Jan Holpert (Flensburg).

Vinstra horn: Jochen Fratz, Christiansen, Jakopsen og Aron Pálmarson

Vinstri Skytta: Logi Geirsson og Brynjar Geirsson

Miðja: Geir Hallsteinsson og Balic

Hægri skytta: Óli Stef, Einar Hólmgeirs og Carejevic

Hægra horn: Bjarki Sig (Báðir) og Dzomba

Lína:Schwartzer og Svarvar Vignis

Edith Ósk, Húsavík, 16 ára

spurning: hvað tekur langan tíma að græja hárið?

Hámark 30 sek því ég er í góðri æfingu.

Björgvin Pétur Sigurjónsson, Hafnafjörður, 16 ára

Hvenær á svo að krúnuraka sig? þú yrðir flottur þannig.

Á mánudaginn ef við töpum leiknum á móti Göppingen!!!

Jón Arnar Magnússon, Reykjavik, 25

Varstu prakkari þegar þú varst yngri?

Já svei mér þá ef það leyndist ekki smá púki í mér á yngri árum.

Oddur Gretarsson, Akureyri, 16 ára

Hvernig myndir þú lýsa venjulegum degi hjá þér?

Vakna ánægður og þakklátur fyrir allt sem ég á og tek öllu sem mig hendir á jákvæðan hátt. Venjulegur dagur innheldur æfingar, góðan mat, elska, hugsa og sofa.

Sveinn Arnarsson, Akureyri, 22 ára

Samkvæmt öruggum heimildum fórstu út að hlaupa um nætur til að vera fljótari en Sverrir Garðarsson, knattspyrnumaður í FH, með einhvern ákveðinn hring sem þið hlupuð oft. Er það rétt?

Já það passar, við tókum spretthlaup á nóttunni í kringum tjörnina niðri í bæ.

Siggi Hlö, Kópavogur, 38 ára

Hvernig ertu í golfi? Hver er forgjöfin þín? Ertu betri eða verri golfari en Brynjar bróðir þinn?

Ég er alveg þokkalega góður, ég er með 15 í forgjöf á góðum degi, ég myndi segja að Brynjar væri aðeins á undan mér.

Ingólfur Ragnar Axelsson, Reykjavík, 23 ára

Hver er kynþokkafyllsti sköllótti leikmaðurinn í heiminum í dag? Ef þú fengið boð um að vera heiðursfélagi í stuðningsmannaklúbbi leikmanns nr 4 hjá Fylki ætlarðu að þiggja það?

Ingólfur Axelsson af öðrum ólöstuðum og ég myndi væntanlega þiggja boðið já.

Ásgeir Ásgeirsson, Hafnarfjörður, 34 ára

Hvernig helduru þér mótíveruðum í gymminu?

Hlusta á góða tónlist og er búinn að ákveða æfinguna áður en ég mæti í gymið. Allt gerist tvisvar, fyrst í hausnum svo í raunveruleikanum.

Jón Þór Kristjánsson, Akureyri. 15 ára

Hvor tekur meira í bekkpressu, þú eða Ásgeir Örn? Hvað eruð þið að taka mikið?

Ertu að djóka í mér eða! Auðvita ég, ég gæti bætt Ásgeiri við á stöngina.

Arnar Daði, 14 ára

Hvaða tegund af geli mælir þú með? Hvaða tegund notar þú yfirleitt? Er það hjátrú hjá þér að nota mikið efni í hárið?

Ég mæli með Lagoom og nota það oftast. Þetta er engin hjátrú, finnst bara gaman að vera vel til fara og hárið er bara bonus.

Hafdis, útlönd, 21 árs

Hvað þýðir eiginlega tattoid á kálfanum á þér?

L&I23= Nafnið mitt og tölurnar 1-2og 3.

Sigurður Örn Þorsteinsson, Reykjavík, 10 ára

Beinbrotnaðir þú í æsku? Ef svo er hafði það einhver áhrif?

Já það kom fyrir en hafði engin áhrif, „Allt sem ekki drepur mann styrkir mann".

Andri Þór Valsson, Akureyri, 16 ára

Hvert er þitt helsta markmið sem íþróttamaður og hvert er stærsta augnablik ferilsins hingað til?

Verða besti handboltamaður í heimi og stærsta augnablikið verður núna sunnudaginn 30. apríl því þá get ég orðið Evrópumeistari.

Atli Fjölnisson, Hafnarfjörður, 9 ára

Hver var fyrirmynd þín í handbolta þegar þú varst yngri?

Þegar ég var yngri þá hafði ég enga sérstaka fyrirmynd.

Rut Sigurjónsdóttir, Hafnarfjörður, 19 ára

Ertu litað/aflitað hár?, ef svo er hvar læturðu lita það?

Ég fæ mér strípur á 2 mánaða fresti og geri það á stofu sem heitir Haarmony hér í Lemgo.

Jóhann, Hafnarfjörður, 23 ára

Hvernig væri draumaliðið þitt í heiminum í dag?

Það eru svo rosalega margir góðir í Handbolta í heiminum í dag að það er varla hægt að velja það.

Óðinn, Kópavogur

Þegar ferlinum lýkur er ekki líklegast að þú snúir þér að pólitík og ef svo verður fyrir hvaða flokk myndir þú bjóða þig fram fyrir?

Ég held að pólitíkin muni ekki notast við starfskrafta mína í framtíðinni því leiðir mínar liggja ekki þangað eins og staðan er í dag.

Davíð Þór Kristjánsson, Reykjavík, 33 ára

Ef þú kæmir heim til að enda feril þinn, og Haukar væru enn í fremstu röð og myndu leita til þín til að styrkja sig fyrir Evróputitil og þú sæir að liðið væri nógur sterkt til að landa svoleiðis dós. Myndir þú slá til?

Ég hef sama og ekki neitt á móti Haukum en ég held að ég myndi bara vera í mínu liði FH og berjast með þeim.

Sigtryggur, Hafnarfjörður, 45 ára

Þú sem dæmigerður Hnakki - Fylgirðu Bíblíu fallega fólksins í einu og öllu?

Í fyrsta lagi þá er ég ekki hnakki og í öðru lagi þá á ég ekki bókina.

Benedikt Grétarsson, Kópavogur, 34 ára

Ertu buinn að fyrirgefa Vigni að rugla i harinu a þer i Haukar -FH leiknum um arið?

Nei, en hann heldur það samt.

Jóhannes Ægir Óskarsson, Hafnarfjörður., 30 ára

Hver er þín versta lífsreynsla af ökutækjum?

Þegar ég var að reyna að bruna yfir stóra Á á fjórhjólinu mínu þegar ég var 14 ára, þið getið reiknað afgangin sjálf.

Sigurgeir Árni Ægisson, Stór-Hafnarfjarðarsvæðið, 26 ára

Stefnir þú enn á að setjast í stól bankastjóra þegar ferlinum lýkur?

Já það er alveg klárt mál að það er þangað sem leiðin liggur eftir boltann, alveg eins og ég tjáði þér 2001.

Árni, Reykjavík, 22 ára

Hvað varstu þungur áður en þú fórst í atvinnumennskuna og hversu þungur og hár ertu núna?

Ég var rúmlega 90 kg og nú í dag er ég 95 kg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×