Innlent

Í gæsluvarðhald fyrir íkveikjur

Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag eins mánaðar gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem kveikti í bíl föður síns í Kópavogi fyrr í vikunni. Áður hafði maðurinn kveikt í blaðabunka í stofu foreldra sinna svo mikill eldur hlaust af.

Maðurinn hefur átt við fíkniefnavanda að stríða og reiddist föður sínum sem reyndi að koma honum í meðferð. Héraðsdómi Reykjaness þótti sýnt að það mikil hætta stafaði af syninum til að úrskurða hann í allt að mánaðarlangt gæsluvarðhald. Hann má því búast við að vera í gæsluvarðhaldi til 7. júní verði honum ekki sleppt áður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×