Sport

Ronaldo sáttur við að vera áfram

Ronaldo átti frekar erfitt uppdráttar í vetur
Ronaldo átti frekar erfitt uppdráttar í vetur NordicPhotos/GettyImages

Brasilíski framherjinn Ronaldo hjá Real Madrid segist vel geta hugsað sér að vera áfram í herbúðum félagsins á næsta tímabili, en talið var víst að hann yrði jafnvel seldur í sumar. Ronaldo segir hlutina væntanlega koma betur í ljóst eftir HM í sumar og þá þegar nýr forseti hefur verið kosinn hjá spænska liðinu.

Ronaldo var gagnrýndur harðlega í vetur fyrir að vera ekki í nægilega góðu formi og virtist alveg vera fallinn í ónáð hjá stuðningsmönnum liðsins. "Eins og staðan er í dag er auðvitað allt upp í loft hjá félaginu eftir erfiða leiktíð. Ég er auðvitað samningsbundinn liðinu til ársins 2008, en ég veit meira að HM loknu. Ég get þó sagt að ef nýr forseti vill hafa mig áfram, væri ég meira en til í það," sagði Ronaldo, sem þó er enn á varðbergi gagnvart stuðningsmönnum liðsins.

"Ég er ánægður í Madrid og vil mjög gjarnan ná árangri með liðinu, en ef stuðningsmennirnir vilja mig ekki - vil ég ekki valda þeim hugarangri og vera áfram hjá liðinu. Stundum eiga stuðningsmennirnir það til að hlaða allri ábyrgðinni á einn eða tvo leikmenn ef illa gengur og það er fljótt að myndast slæmt andrúmsloft við minnsta mótlæti. Ég vona sannarlega að þessu verði kippt í liðinn á næsta tímabili og þá er ég viss um að liðið getur náð fínum árangri," sagði Ronaldo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×