Sport

Grindvíkingar lögðu Skagamenn

Grindvíkingar unnu glæsilegan sigur á Skagamönnum í fyrstu umferð Landsbankadeildar karla í knattspyrnu í dag 3-2, þar sem Jóhann Þórhallsson var hetja heimamanna og skoraði tvö mörk - hið síðara á 90. mínútu leiksins og tryggði það heimamönnum sigurinn.

Arnar Guðlaugsson kom ÍA yfir í upphafi leiks, en Mounir Ahandour jafnaði fyrir Grindavík. Ellert Jón Björnsson skoraði síðara mark Skagamanna og jafnaði metin í 2-2 áður en Jóhann gerði svo út um leikinn.

Fylkir lagði Víking 2-0 á Víkingsvelli í tilþrifalitlum leik.  Christian Christiansen kom Fylki á bragðið í upphafi síðari hálfleiks og Páll Einarsson tryggði Árbæjarliðinu svo sigurinn með marki á 74. mínútu.

Eyjamenn byrjuðu mótið með sigri þegar liði skellti Keflvíkingum á heimavelli 2-1. Simun Samuelsen kom gestunum yfir eftir 20 mínútur, en þeir Bo Henriksen (úr víti) og Páll Hjarðar tryggðu heimamönnum góðan sigur.

Klukkan 20 í kvöld er svo stórleikur KR og FH á dagskrá í Frostaskjóli, en sá leikur verður einnig sýndur beint á Sýn. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×