Innlent

Segjast ekki hafa boðið Gísla Einarssyni sæti á lista

Gísli S. Einarsson, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar
Gísli S. Einarsson, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar MYND/Vísir

Forystumenn Frjálslynda flokksins segja ekkert hæft í þeirri „gróusögu" að flokkurinn hafi í undanfara kosningabaráttu boðið Gísla S. Einarssyni, fyrrverandi alþingismanni Samfylkingar, sæti á framboðslista Frjálslyndra og óháðra á Akranesi fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar.

Í tilkynningu sem forysta flokksins sendi frá sér í dag segir orðrétt:

Sú gróusaga gengur nú um Akranes að forysta Frjálslynda flokksins hafi í undanfara kosningabaráttu boðið Gísla S. Einarssyni, fyrrverandi alþingismanni Samfylkingar, sæti á framboðslista Frjálslyndra og óháðra á Akranesi fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar.

Að þessu tilefni og til að útiloka allan misskilning, er rétt að taka skýrt fram að Gísla hefur aldrei verið boðið sæti á lista af hálfu Frjálslynda flokksins enda enginn áhugi fyrir því innan flokksins. Né hefur Gísli sjálfur leitað eftir slíku.

Frjálslyndi flokkurinn gefur lítið fyrir þau vinnubrögð sem Sjálfstæðisflokkurinn á Akranesi tíðkar þessa dagana, þar sem reynt er að láta líta út fyrir að Gísli S. Einarsson sé í framboði til að sækjast eftir umboði kjósenda til að stjórna bæjarfélaginu næstu fjögur árin.

Lögum samkvæmt eru bæjarstjórar ekkert annað en framkvæmdastjórar sem ráðnir eru til að þjóna bæjarstjórn þar sem sitja kjörnir fulltrúar sem bæjarbúar hafa veitt umboð til valda.

Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins.

Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslynda flokksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×