Innlent

Breytingar geti lækkað matarverð um 20 prósent

MYND/Sigurður Jökull

Samtök verslunar og þjónustu segja að matarverð geti lækkað um hátt í 20 prósent ef breytingar verði gerðar á skatta- og gjaldaumhverfi á matvörumarkaði. Samtökin vilja frjálsan innflutning á landbúnaðarvörum í skrefum en vilja breytingar á vörugjöldum og virðisaukaskatti sem fyrst.

Alþýðusamband Íslands birti í gær niðurstöður matvörukönnunar sem gerð var í höfuðborgum allra norrænu ríkjanna. Þar kom í ljós að matarkarfa með helstu nauðsynjum var nærri tvöfalt dýrarir í Reykjavík en í Stokkhólmi og að aðeins Oslóbúar borguðu svipað verð fyrir matinn og Reykvíkingar.

Samtök verslunar og þjónustu segja niðurstöður könnunarinnar sýna að það séu einkum landbúnaðarvörur sem séu dýrari hér en að meðaltali í samanburðarlöndunum. Þau vilja því að allir tollar á innfluttar landbúnaðarvörur og framleiðslustyrkir verði afnumdir í skrefum.

Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir samtökin ekki vilja neinar kollsteypur eða byltingar. Þau hafi bent stjórnvöldum á að taka ákveðna stefnu í málinu og feta sig svo áfram í tímasettum skrefum að því marki sem menn vilji ná, þ.e. að það ríki verslunarfrelsi í innflutningi á landbúnaðarvörum og að innlend framleiðsla verði að standa sig í samkeppni við þær.

Sigurður bendir á innflutningstollar á grænmeti hafi verið lækkaðir með góðum ávinningi fyrir neytendur. Hann segir að matarverð geti lækkað um 12-20 prósent við slíkar breytingar. Hann bendir einnig á vörugjöld og virðisaukaskatt á matvæli sem beri að breyta.

Samtökin hafi lagt mjög ákveðið til við matvælanefnd forsætisráðherra að byrjað væri á því að fella niður vörugjöld af matvælum, sem kosti tæpa tvo milljarða. Síðan verði allur matur færður niður í eitt lægra virðisaukaskattsþrep sem væri 12 prósent. Það yrði þá svipað og annars staðar í Evrópu, en einungis í Danmörku sé hærri virðisaukaskattur á matvæli en hér.

Samtök verslunar og þjónustu binda miklar vonir við niðurstöðu matvælanefndar forsætisráðherra sem á að koma með tillögur til lækkunar á matvælaverði . Nefndin á skila tillögum fyrir mitt ár og að sögn Hallgríms Snorrasonar, hagstofustjóra og formanns nefndarinnar, verður það gert og því er niðurstaðna að vænta á næstu vikum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×