Innlent

Niðurstaða könnunar um nafn á nýtt sveitarfélag í Borgarfirði

Samhliða sveitarstjórnarkosningunum fór fram könnun meðal íbúa sameinaðs sveitarfélags Borgarbyggðar, Borgarfjarðarsveitar, Hvítársíðuhrepps og Kolbeinsstaðahrepps um nafn á hið nýja sveitarfélag.

Niðurstaða könnuninnar er eftirfarandi:

Borgarbyggð 1.034 atkvæði

Brákarbyggð 28 atkvæði

Mýrabyggð 40 atkvæði

Sveitarfélagið Borgarfjörður 628 atkvæði

Auð og ógild 28 atkvæði

Samtals 1.759 atkvæði




Fleiri fréttir

Sjá meira


×