Detroit tórir enn 1. júní 2006 05:04 Ben Wallace átti tilþrif leiksins þegar hann varði skot frá Shaquille O´Neal með tilþrifum. Rip Hamilton stendur furðu lostinn álengdar og fylgist með AFP
Leikmenn Detroit Pistons hafa ekki sagt sitt síðasta í einvígi sínu við Miami Heat en í nótt vann liðið 91-78 heimasigur í fimmtu viðureign liðanna í úrslitum Austurdeildarinnar og forðaði sér þar með frá því að fara snemma í sumarfrí. Heimamenn virkuðu nokkuð taugatrekktir í byrjun leiks og kannski ekki af ástæðulausu, því liðið horfði fram á að fara í sumarfrí ef það tapaði leiknum. Með góðum stuðningi frá áhorfendum í The Palace tók Detroit þó fljótlega forystu og leiddi 25-20 eftir fyrsta leikhlutann. Tayshaun Prince fór mikinn í liði Detroit og skoraði 29 stig í leiknum, sem er það mesta sem hann hefur skorað í úrslitakeppni á ferlinum. Detroit leiddi 47-43 í hálfleik, en eins og tölurnar gefa til kynna voru gestirnir frá Miami aldrei langt undan og leyfðu heimamönnum aldrei að ná þægilegu forskoti. Segja má að úrslit leiksins hafi farið langt með að ráðast í þriðja leikhlutanum, en það var þá sem heimamenn fengu áhorfendur fyrst almennilega á sitt band með glæsilegum tilþrifum. Miami skoraði svo aðeins 13 stig í lokaleikhlutanum og geiguðu síðustu 9 skot liðsins í leiknum. Dwayne Wade var sem fyrr stigahæstur í liði Miami með 23 stig, en það er þó talsvert undir meðaltali hans til þessa í einvíginu. Shaquille O´Neal skoraði 19 stig og þeir Antoine Walker og Udonis Haslem skoruðu 10 stig hvor. Chauncey Billups skoraði 17 stig og gaf 10 stoðsendingar fyrir Detroit, Rip Hamilton skoraði 16 stig og hirti 10 fráköst og Antonio McDyess skoraði 12 stig og hitti úr öllum skotum sínum í leiknum. Næsti leikur liðanna fer því fram í Miami á föstudagskvöldið og þar er hætt við því að leikmenn Miami muni leggja allt kapp á að vinna sigur, því þeir vilja eflaust ekki þurfa að fara aftur upp til Detroit í oddaleik. Ekki er hægt að segja að sagan sé á bandi Detroit, því lið sem hafa lent 3-1 undir í átta liða- og undanúrslitum NBA á undanförnum árum hafa tapað slíkum einvígjum í 40 af síðustu 43 skiptum sem sú staða kemur upp - og þar af þeim 16 síðustu í röð. "Við mættum bara dýrvitlausir til leiks eins go við vorum búnir að lofa," sagði Chauncey Billups hjá Detroit eftir leikinn. "Nú er pressan að færast aðeins yfir á þá, því þeir vilja auðvitað tjalda öllu í næsta leik - enginn vill þurfa að koma hingað í oddaleik," sagði Billups, en Dwayne Wade var ekki alveg sammála. "Það er engin pressa á okkur. Við viljum auðvitað klára dæmið á heimavelli, en pressan er öll á þeim - það eru þeir sem eru tvöfaldir Austurdeildarmeistarar," sagði Wade. Sjötti leikur liðanna verður að sjálfssögðu sýndur í beinni útsendingu á Sýn á föstudagskvöldið, en rétt er að minna á að í kvöld fer fram fimmti leikur Dallas og Phoenix og hann verður sýndur beint á Sýn í kvöld.
Erlendar Íþróttir Körfubolti NBA Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Fleiri fréttir Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Stofnandi Rafíþróttasambands Íslands í Esports Hall of Fame Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Dusty aftur á toppinn eftir 4. umferð Sakar andstæðing um að stela þjálfaranum sínum Bestu guttarnir í Bestu deild karla Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Pabbinn fékk tattú á punginn Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Viktor Gísli öflugur gegn PSG Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn ÍBV og Grótta með sigra Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Arsenal sneri dæminu sér í vil Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Birkir á leið til Vals á nýjan leik Segir álagið vera að drepa menn Helena verður á skjánum í vetur Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Fortnite er aðalleikurinn Afleitur Evrópuárangur Ten Hags upp á síðkastið Derrick Rose leggur skóna á hilluna Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Sjá meira