Sport

Fleiri spænsk lið inni í myndinni

Eiður Smári er orðaður við nokkur lið á Spáni
Eiður Smári er orðaður við nokkur lið á Spáni NordicPhotos/GettyImages

Breska blaðið Guardian greinir frá því í dag að babb sé komið í bátinn í samningaviðræðum Chelsea og Barcelona varðandi hugsanleg kaup á fyrirliða íslenska landsliðsins og fullyrðir að Valencia og annað ónefnt lið sé komið inn í myndina.

Blaðið segir þó að Barcelona sé enn líklegasta liðið til að hreppa Eið Smára, því þar séu til peningar til að greiða fyrir hann - Valencia þurfi að bjóða leikmenn í skiptum fyrir hann og það sé eitthvað sem Chelsea hefur lítinn áhuga á að gera.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×