Sport

Túnisar mörðu jafntefli gegn Sádum

Zied Jaziri fagnar marki sínu í dag
Zied Jaziri fagnar marki sínu í dag

Túnis og Sádí Arabía gerðu 2-2 jafntefli í síðasta leik fyrstu umferðar HM í dag, en liðin leika í H-riðli. Radhi Jaidi, leikmaður Bolton, bjargaði stiginu fyrir Túnis þegar hann skallaði knöttinn í netið á lokaandartökum leiksins.

Varamaðurinn Sami Al Jaber virtist hafa tryggt Sádum óvæntan sigur þegar hann kom liðinu 2-1 yfir þegar sex mínútur voru eftir af leiknum, en hann skoraði eftir að hafa verið inni á vellinum í aðeins 90 sekúndur.

Ziad Jaziri kom Túnisum yfir í fyrri hálfleik, en Yasser Al Kahtani jafnaði með góðu skoti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×