Erlent

Batamerki síamstvíburastúlkna

Foreldrarnir líta til með Renötu stuttu eftir aðskilnað hennar frá systur sinni
Foreldrarnir líta til með Renötu stuttu eftir aðskilnað hennar frá systur sinni MYND/AP
Síamstvíburastúlkurnar sem aðskildar voru á barnaspítalanum í Los Angeles í Bandaríkjunum eru farnar að sýna merki um bata. Læknar eru bjartsýnir á að bati stúlknanna muni ganga að óskum. Stúlkurnar gengust undir tólf tíma aðgerð í fyrradag og í gær og þótti aðgerðin heppanst vel. Systurnar voru fastar saman frá neðra brjóstholi niður að mjaðmagrind. Aðgerðin þótti einstaklega flókin þar sem endurskapa þurfti mörg mikilvæg líffæri en önnur stúlknanna var aðeins með eitt nýra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×