Innlent

Betri GSM þjónusta í miðbænum á 17. júní

Og Vodafone hefur eflt GSM þjónustu sína í miðbæ Reykjavíkur fyrir hátíðarhöld á morgun, þjóðhátíðardaginn 17. júní. Markmiðið er að tryggja hnökralaus samskipti hjá GSM viðskiptavinum þar sem gera má ráð fyrir miklum fjölda gesta í tengslum við hátíðarhöld á svæðinu.

Og Vodafone hefur lagt mikla áherslu á bætt GSM samband á höfuðborgarsvæðinu á liðnum mánuðum, bæði í nýjum og eldri hverfum borgarinnar. Þá hefur fyrirtækið aukið þjónustu sína í kringum stórviðburði sem eiga sér stað á höfuðborgarsvæðinu og víðar, svo sem tónleika og útihátíðir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×