Innlent

Töluverður erill hjá lögreglunni á Akureyri

MYND/KK

Töluverður erill var hjá lögreglunni á Akureyri í gær og nótt en nóttinn gekk þó slysalaust fyrir sig. Mikil ölvun var í bænum og þurfti lögregla að hafa afskipti af allmörgum ungmennum sem ekki höfðu lögaldur til að neyta áfengis. Fjórir voru teknir fyrir ölvunarakstur í gærkvöld og nótt og þá hefur 21 verið sektaður fyrir hraðakstur frá því um miðjan dag í gær. Að sögn lögreglu er margt fólk í bænum og verður hún með viðbótarmannskap á vakt í kvöld til þess að reyna að sjá til þess að þjóðhátíðarfagnaðir fari vel fram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×