Innlent

Á góðum batavegi eftir hnífsstungu

MYND/GVA

Maðurinn sem var stunginn með hnífi í kviðinn á veitingastað við Laugaveg í fyrrinótt er á góðum batavegi. Hann dvelur enn á gjörgæslu en verður útskrifaður þaðan í dag og fluttur á almenna deild. Lögreglan í Reykjavík handtók í gær ungan mann sem talinn er hafa stungið mannin og var hann úrskurðaður í gæsluvarðhald til næsta föstudags vegna málsins. Rannsókn á tildrögum árásarinnar stendur enn yfir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×