Sport

Hefur fulla trú á stjörnunum

Raul Gonzalez er mikilvægur liði Real að mati Capello
Raul Gonzalez er mikilvægur liði Real að mati Capello NordicPhotos/GettyImages

Fabio Capello hefur þegar hafið störf hjá nýja félaginu sínu Real Madrid og segist standa fullkomlega við bakið á leikmönnum á borð við Raul, David Beckham og Ronaldo.

"David Beckham er mikilvægur hlekkur í liði Real Madrid og tölurnar tala sínu máli þegar röðin kemur að Ronaldo. Þú verður að skora mörk ef þú ætlar að vinna leiki og Ronaldo gerir einmitt það," sagði Capello og bætti við að hann hefði miklar mætur á fyrirliðanum Raul. "Hann er það sama fyrir Real Madrid og Paolo Maldini er fyrir AC Milan."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×