Sport

Þróttur lagði Milwall

Þróttarar skelltu Milwall í dag
Þróttarar skelltu Milwall í dag Mynd/Hörður
Lið Þróttar í 1.deildinni gerði sér lítið fyrir og skellti enska 2. deildarliðinu Milwall 2-0 í æfingaleik liðanna á Valbjarnarvellinum í dag. Sinisa Valdimar Kekic skoraði annað mark Þróttar beint úr aukaspyrnu og þá var Magnús Már Lúðvíksson einnig á skotskónum. Milwall mætir KR í æfingaleik á mánudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×