Sport

Keflvíkingar burstuðu ÍBV

Leikur Keflavíkur og ÍBV var hinn fjörugasti í kvöld
Leikur Keflavíkur og ÍBV var hinn fjörugasti í kvöld Mynd/Víkurfréttir
Keflvíkingar tóku Eyjamenn í bakaríið í leik kvöldsins í Landsbankadeild karla í knattspyrnu og sigruðu 6-2. Stefán Örn Arnarsson og Þórarinn Kristjánsson skoruðu sitt hvor tvö mörkin fyrir Keflavík og Kenneth Gustavsson og Guðmundur Steinarsson skoruðu eitt hvor. Pétur Runólfsson og Ulrik Drost skoruðu mörk ÍBV, en Páli Hjarðar var vikið af leikvelli fyrir olnbogaskot á 70. mínútu og léku Keflvíkingar því manni fleiri síðasta korterið í leiknum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×