Viðskipti innlent

Launavísitalan hækkaði um 0,4 prósent

Peningar.
Peningar.

Launavísitalan í júní hækkaði um 0,4 prósent frá maí og er 290,4 stig. Vísitalan hefur hækkað um 8,8 prósent síðastliðna 12 mánuði, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar.

Launavísitalan hækkaði um 1,5 prósent frá fyrri fjórðungi ársins fyrir helstu launþegahópa. Sambærileg vísitala fyrir opinbera starfsmenn og bankamenn hækkaði hins vegar um 2,4 prósent. Þá hækkaði launavísitalan fyrir almennan markað um 1,0 prósent frá fyrri ársfjórðungi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×