Innlent

Lagt hald á nokkuð af fíkniefnum

Siglufjörður
Siglufjörður MYND/Vilhelm

Lögreglan á Siglufirði lagði í gærkvöldi og nótt hald á nokkuð af fíkniefnum og voru þrír menn handteknir í tengslum við málið. Gerð var húsleit á tveimur stöðum í bænum og játuðu tveir hinna handteknu að vera eigendur efnanna.

Lögreglan á Siglufirði naut aðstoðar tveggja lögreglumanna frá sérsveit Ríkislögreglustjóra við rannsókn málsins og einnig kom þeim til aðstoðar starfsmaður, með leitarhund, frá Tollstjóranum í Reykjavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×